Helena Sverrisdóttir leikmaður og aðstoðarþjálfari Hauka er á leið til slóvakíska félagsins Good Angels á ný. Þar mun hún leika næstu vikurnar í deildinni heima fyrir og í einni bestu deild evrópu Europe Cup. Frá þessu var greint á mbl.is í morgun.
Helena vann meistaratitilinn í Slóveníu árin 2012 og 2013 með Good Angels og þekkir því vel til liðsins. Liðið leikur á mörgum vígvöllum þessi misserin en liðið er einnig komið í 16 liða úrslit Europe Cup og situr í efsta sæti Austur evrópu deildarinnar (EEWBL).
Helena mun þó samkvæmt Morgunblaðinu ljúka tímabilinu hjá Haukum og því einungis um skammtímasamning að ræða. Félagaskiptaglugginn á Íslandi lokar þann 1. febrúar og þarf Helena því að skipta um lið fyrir það.
Haukar eru í öðru sæti Dominos deildar kvenna um hátíðarnar en ljóst er að liðið verður án Helenu í nokkrum leikjum á nýju ári.




