Helena Sverrisdóttir og stöllur hennar í TCU unnu sinn annan sigur í röð, 71-64, þegar að þær mættu Nevada háskólanum í Las Vegas í gærkvöldi. Helena var í bana stuði og skoraði 17 stig og tók 5 fráköst en Helena nýtti öll sín skot fyrir utan.
15 af þessum stigum komu úr þriggja stiga skotum og hefði Helena sett niður eina vítið sem hún fékk í leiknum hefði hún gengið af velli með 100% hittni úr skotum sínum.
Emily Carter, leikmaður TCU, var með trölla tvennu þegar hún skoraði 18 stig og tók 18 fráköst.
Næsti leikur liðsins er gegn Wyoming á laugardaginn á heimavelli TCU.





