spot_img
HomeFréttirHekla í háskólaboltann

Hekla í háskólaboltann

Hekla Eik Nökkvadóttir leikmaður Grindavíkur í Subway deild kvenna mun halda vestur um haf og ganga til liðs við App State í bandaríska háskólaboltanum fyrir næsta tímabil.

Hekla varð 20 ára gömul nú í apríl, en hún lék á sínum tíma upp alla yngri flokka Grindavíkur og með meistaraflokki þeirra frá 2019-20 tímabilinu. Þá hefur hún einnig verið í lykilhlutverki í öllum yngri landsliðum Íslands á síðustu árum.

Hekla heldur til App State fyrir tilstuðlan Soccer and education USA, en liðið er staðsett í borginni Boone í körfuboltaríkinu Norður Karólínu. Liðið leikur í Sun Belt hluta efstu deildar háskólaboltans.

Fréttir
- Auglýsing -