Grindavík hefur framlengt samningi sínum við hina efnilegu Heklu Eik Nökkvadóttur og mun hún leika út næsta tímabil með liðinu í Subway deild kvenna.
Hekla er að upplagi úr Grindavík og átti fínan vetur með nýliðunum á síðasta tímabili í deildinni, skilaði 7 stigum að meðaltali í leik, en Grindavík endaði í 6. sæti deildarinnar.
Tilkynning:
Hekla Eik Nökkvadóttir hefur gert nýjan samning við Grindavík út næsta keppnistímabil. Hekla Eik er ein efnilegasta körfuknattleikskona landsins og eru það frábærar fréttir fyrir Grindavík að hún verði áfram með félaginu á komandi tímabili.
Hekla er 18 ára bakvörður sem var með 7,1 stig að meðaltali í Subwaydeild kvenna á síðustu leiktíð. Hekla hefur verið lykilmaður í liðinu undanfarin tvö ár þrátt fyrir ungan aldur