Lokaleikur úrslita Bónus deildar karla fór fram í kvöld.
Um var að ræða oddaleik Tindastóls og Stjörnunnar í Síkinu, en fyrir leik kvöldsins var staðan 2-2, þar sem heimaliðin höfðu unnið sína leiki. Með sigrinum í kvöld náði Stjarnan að tryggja sér sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil.
Karfan spjallaði við Baldur Þór Ragnarsson þjálfara Stjörnunnar eftir leik í Síkinu.