spot_img
HomeNeðri deildir1. deild kvennaHeiða Hlín til Þórs Akureyri

Heiða Hlín til Þórs Akureyri

Heiða Hlín Björnsdóttir mun leika með Þór Akureyri á næsta tímabili í fyrstu deild kvenna. Heiða lék á sínum tíma upp alla yngri flokka Þórs, en var á síðasta tímabili með nýliðum Fjölnis í Dominos deildinni. Þá hefur hún áður einnig leikið fyrir Snæfell. Með Fjölni var hún í lykilhlutverki er nýliðarnir tryggðu sér sæti í úrslitakeppninni.

Þór Akureyri mun á nýjan leik tefla fram meistaraflokki kvenna á næsta tímabili, en liðið hefur verið að tilkynna leikmenn sína síðustu daga.

Tilkynning:

Körfuknattleiksdeild Þórs og Heiða Hlín Björnsdóttir hafa náð samkomulagi um hún muni spila með Þór í 1. deildinni á komandi leiktíð. Heiða Hlín er ein af betri körfuboltakonum sem komið hafa upp úr yngri flokkum Þórs.

Heiða Hlín sem er 24 ára gömul var ein af burðarásum í liði Þórs til margra ára en hún lék hún siðast með Þór tímabilið 2017-2018. Á lokahófi 2018 var Heiða valin mikilvægasti leikmaður liðsins.
Eftir það tímabil gekk Heiða Hlín til liðs við Snæfell en síðustu tvö tímabil hefur hún verið í lykilhlutverki hjá úrvalsdeildarliði Fjölnis. Það þarf því ekki að fara mörgum orðum um hversu mikill hvalreki það er fyrir Þór að endurheimta svo sterkan leikmann sem Heiða Hlín er.

Heiða Hlín er mjög sterkur og fjölhæfur leikmaður sem fórnar sér 100% fyrir sitt lið og gefst aldrei upp. Þá hefur hún það orð á sér að vera einstaklega öflugur liðsmaður innan vallar sem utan.

Heiða Hlín mun svo skrifa formlega undir samning við Þór í næstu viku.

Bjóðum Heiðu Hlín velkomna heim og óhætt er að fullyrða að stuðningsmenn eiga eftir að fagna þessum tíðindum og taka vel á móti henni.

Fréttir
- Auglýsing -