HomeFréttirHeat lögðu Lakers: Odom fékk andlitsmeðferð

Heat lögðu Lakers: Odom fékk andlitsmeðferð

Þrír leikir fóru fram í NBA deildinni í nótt og stærsti slagurinn var vitaskuld viðureign Miami Heat og LA Lakers en leikurinn fór fram á heimavelli Heat þar sem LeBron og félagar fóru með 98-87 sigur af hólmi.
LeBron fór mikinn í fjarveru Dwyane Wade sem glímir við ökklameiðsli en King James gerði 31 stig í leiknum, tók 8 fráköst og gaf 4 stoðsendingar. Honum næstur í sigurliði Heat var Chris Bosh með 15 stig og 8 fráköst. Hjá Lakers var Pau Gasol með 26 stig og 8 fráköst og Kobe Bryant gerði 24 stig og gaf 7 stoðsendingar.
 
Önnur úrslit næturinnar:
 
Houston 90-88 New Orleans
Utah 91-94 Dallas
 
Mynd/ LeBron leiddi Heat til sigurs í nótt
 
 
   
Fréttir
- Auglýsing -