HomeFréttirHaukar sóttu sigur í Njarðvík - Stjarnan aftur í fjórða sæti

Haukar sóttu sigur í Njarðvík – Stjarnan aftur í fjórða sæti

Rétt í þessu lauk 23. umferð Dominos deildar kvenna með þremur leikjum. Eftir kvöldið í kvöld eru einungis fimm umferðir eftir af deildarkeppninni og því ýmislegt sem skýrðist eftir leiki kvöldsins. 

 

Í Njarðvík var toppliðið i heimsókn. Þrátt fyrir hetjulega baráttu botnliðs Njarðvíkur voru Haukar einfaldlega of stórt númer í kvöld. 

 

Stjarnan endurheimti fjórða sæti deildarinnar og síðasta sætið í úrslitakeppnina þegar liðið sótti sigur í Smárann gegn Breiðablik. Skallagrímur var í fjórða sætinu fyrir leikinn en liðið lék í þessari umferð síðasta sunnudag. 

 

Stórleikur kvöldsins var svo í Valshöll þar sem þýðingarmikill leikur um heimaleikjarétt í úrslitakeppninni fór fram. Valsarar unnu mikilvægan sigur á Keflavík en liðið þurfti að vinna með meira en 10 stigum til að ná yfirhöndinni í innbyrðisviðureign liðanna og það tókst að lokum. 

 

 

Úrslit kvöldsins:

 

Dominos deild kvenna:

Valur 89-66 Keflavík

Njarðvík 75-85 Haukar

Breiðablik 57-63 Stjarnan

 

1. deild kvenna:

Hamar-Grindavík

Fréttir
- Auglýsing -