HomeFréttirHaukar slógu Keflavík úr Maltbikarnum

Haukar slógu Keflavík úr Maltbikarnum

Keflavík er úr leik í Maltbikar karla eftir tap gegn Haukum á heimavelli sínum. Keflavík var sterkari aðilinn í byrjun en svæðisvörn þeirra virtist koma Haukum á óvart.

 

Haukar sigu frammúr þegar leið á fyrri hálfleikinn og fóru með forystu inní seinni hálfleik. Eftir jafnan þriðja leikhluta settu Haukar í fimmta gír í lokinn og unnu að lokum sannfærandi 74-83 sigur. 

 

Haukar eru þar með komnir í undanúrslit Maltbikarsins en þau fara fram í Laugardalshöllinni og því meistaraflokkur karla hjá Haukum komnir þangað í fyrsta sinn í ansi mörg ár. 

 

Úrslit dagsins:

 

Maltbikar karla:

 

Keflavík-Haukar 74-83 (23-20, 18-26, 21-15, 12-22)

Keflavík: Gu?mundur Jónsson 22/7 fráköst, Stanley Earl Robinson 17/10 fráköst, Ágúst Orrason 13, Reggie Dupree 8/5 fráköst, Ragnar Örn Bragason 7, Magnús Már Traustason 3/5 fráköst, Hilmar Pétursson 2, Da?i Lár Jónsson 2/5 fráköst, Daví? Páll Hermannsson 0, Þröstur Leó Jóhannsson 0/8 fráköst, Arnór Sveinsson 0, Andri Daníelsson 0. 

Haukar: Finnur Atli Magnússon 25/10 fráköst, Emil Barja 16/8 fráköst, Kári Jónsson 16/6 fráköst/9 sto?sendingar, Paul Anthony Jones III 13/12 fráköst, Hjálmar Stefánsson 6/4 fráköst, Haukur Óskarsson 3, Kristján Leifur Sverrisson 2/4 fráköst, Breki Gylfason 2/3 varin skot, Alex Rafn Gu?laugsson 0, Sigur?ur Ægir Brynjólfsson 0, Arnór Bjarki Ívarsson 0, Ívar Barja 0. 
 

Fréttir
- Auglýsing -