HomeFréttirHaukar Íslandsmeistarar í minnibolta 10 ára drengja

Haukar Íslandsmeistarar í minnibolta 10 ára drengja

Drengjalið Hauka í minnibolta 10 ára fagnaði glæsilegum sigri helgina 9. til 10. maí þegar liðið tryggði sér Íslandsmeistaratitilinn eftir frábæra frammistöðu á lokamóti tímabilsins sem fram fór á Akranesi.

Strákarnir sýndu frábæran leik í úrslitamótum tímabilsins og unnu 7 leiki en töpuðu 3 og kórónuðu þar með tímabilið með gullverðlaunum við mikinn fögnuð leikmanna og stuðningsmanna.

Hér fyrir ofan má sjá mynd af liðinu eftir að bikarinn fór á loft.

Mynd / KKÍ

Fréttir
- Auglýsing -