spot_img
HomeBónus deildinBónus deild kvennaHaukar blása til hátíðar fyrir fyrsta leik úrslita

Haukar blása til hátíðar fyrir fyrsta leik úrslita

Úrslitaeinvígi Bónus deildar kvenna rúllar af stað annað kvöld.

Um er að ræða fyrsta leik deildarmeistara Hauka og bikarmeistara Njarðvíkur kl. 19:15 í Ólafssal, en bæði lið sópuðu leið sína í úrslitin, Njarðvík gegn ríkjandi Íslandsmeisturum Keflavíkur og Haukar gegn liði Vals.

Við tilefnið hafa Haukar ákveðið að blása til veislu fyrir leikinn, þar sem Fan Zone mun opna kl. 17:00 í Ólafssal, en á boðstólum þar fyrir stuðningsmenn beggja liða verður Bjössabar & grillaðir borgarar, lukkuhjól, andlitsmálun og ís. Þá munu Rúnar Ingi Erlingsson, fyrrverandi þjálfari Njarðvíkur, og Ingvar Guðjónsson, fyrrverandi þjálfari Hauka, sitja fyrir svörum frá kl. 18:45. Spyrill mun mæta til að spyrja þá spurninga, en svo verður einnig tekið við spurningum úr sal.

Hérna er viðburðurinn á Facebook

Fréttir
- Auglýsing -