HomeFréttirHaukar bikarmeistarar í unglingaflokki karla

Haukar bikarmeistarar í unglingaflokki karla

Haukar eru bikarmeistarar í unglingaflokki karla eftir sigur á sameinuðu liði Hamars og Þórs úr Þorlákshöfn. Hafnfirðingar tóku frumkvæðið snemma leiks og leiddu allan tímann uns lokaflautið gall. Lokatölur voru 101-78 Haukum í vil en þeim tókst ekki að brjóta Hamar/Þór endanlega á bak aftur fyrr en á allra síðustu mínutum leiksins.
 
Með Örn Sigurðarson fremstan í flokki náðu Haukar snemma undirtökunum í leiknum og komust í 17-9. Vörn gestanna var sofandi í fyrsta leikhluta og nýttu heimamenn að Ásvöllum sér það vel og leiddu 31-22 eftir fyrstu tíu mínúturnar.
 
Miðherjinn Ragnar Nathanelsson fékk snemma í öðrum leikhluta sína þriðju villu í liði Hamars/Þórs og hélt því á bekkinn. Þrátt fyrir fjarveru miðherjans tókst gestunum að bíta frá sér og minnkuðu muninn í 38-33 en þá hrukku Hafnarfjarðarbyssurnar Haukur Óskarsson og Steinar Aronsson í gang og sáu til þess að Haukar leiddu 55-43 í hálfleik og ljóst að Ágúst þurfti að stoppa í varnargötin hjá Hamri/Þór.
 
Emil Barja og Örn Sigurðarson voru báðir með 14 stig hjá Haukum í hálfleik og Steinar Aronsson með 11. Emil Karel Einarsson, sem kom kröftugur af bekknum, og Þorsteinn Már Ragnarsson voru báðir með 10 stig í liði Hamars/Þórs.
 
Hamar/Þór byrjaði síðari hálfleikinn vel, gerðu tíu stig á móti fjórum frá Haukum á fyrstu augnablikum síðari hálfleiks. Haukar héldu sig við svæðisvörnina og þegar miðherjinn Ragnar Nathanelsson var við það að komast í gang í liði gestanna fékk hann sína fjórðu villu og hélt á bekkinn.
 
 
Um miðbik þriðja leikhluta höfðu Haukar tekið fleiri sóknarfráköst en varnarfráköst í leiknum og fyrir vikið voru þeir með taumhaldið á leiknum. Hamar/Þór vann leikhlutann 24-21 en það voru Haukar sem leiddu 76-67 fyrir fjórða og síðasta leikhluta.
 
Ávallt þegar Hamar/Þór fikraði sig nærri kom vel tímasettur þristur úr herbúðum Hauka til að kæfa niður andóf gestanna. Haukur Óskarsson setti tvo slíka í röð og kom rauðum í 85-71 snemma í fjórða leikhluta.
 
Óhætt er að segja að Haukur Óskarsson hafi endanlega rekið smiðshöggið fyrir Hafnfirðinga þegar þrjár mínútur voru til leiksloka en þá hrundi inn sjötti þristur Hauks í leiknum sem breytti stöðunni í 92-75 Haukum í vil. Þetta var dagur Hauka enda skiluðu þeir sinni vinnu betur, fráköstuðu betur en gestir sínir og tóku góð skot, sér í lagi fyrir utan, og þau vildu niður í þetta sinn. Lokatölur reyndust svo 101-78 Haukum í vil.
 
Haukur Óskarsson var stigahæstur hjá Haukum með 28 stig en hann var kjörinn maður leiksins. Næstur honum var Örn Sigurðarson með 21 stig og 13 fráköst. Hjá Hamar/Þór Þ. voru þeir Emil Karel Einarsson og Þorsteinn Ragnarsson stigahæstir með 17 stig hvor.
 
 
Fréttir
- Auglýsing -