Hannes Sigurbjörn Jónsson, framkvæmdastjóri Körfuknattleikssambands Íslands, var gestur í nýjasta þætti Dagmála þar sem hann ræddi meðal annars stöðu íþróttamála, byggingu nýrrar þjóðarhallar í Laugardal og samskipti íþróttahreyfingarinnar við stjórnmálin.
Til stendur að ný þjóðarhöll rísi árið 2031 og segir Hannes að bæði KKÍ og Handknattleikssamband Íslands hafi beðið lengi eftir nýrri aðstöðu. Hann bendir á að flestallir stjórnmálaflokkar hafi á einn eða annan hátt komið að málefnum hallarinnar og íslensku íþróttalífi á undanförnum árum. Hannes kveðst eiga í góðu spjalli við Kristrúnu Frostadóttur og sína félaga í Samfylkingunni og hefur mikla trú á að verkefnið nái fram að ganga.
Þá hrósaði hann Ásmundi Einari Daðasyni sérstaklega og sagði hann vera einn þeirra ráðherra sem best hefðu staðið sig fyrir hreyfinguna, enda hafi hann lagt mikið á sig og verið í virku samtali við forsvarsmenn íþróttanna í Laugardal.
Hannes vill sjá ríkisstjórnina lyfta íþróttamálum upp á næsta stig og kallar eftir því að ráðherra íþróttamála verði enn sýnilegri og öflugri málsvari. Hann leggur áherslu á að stjórnmálamenn mæti ekki aðeins á kappleiki heldur komi reglulega í Laugardalinn, eigi samtöl við fólkið innan hreyfingarinnar og taki virkan þátt í hennar starfi.
Framkvæmdastjórinn skorar á Ingu Sæland




