Þann 14. ágúst næstkomandi hefur Ísland leik í riðlakeppni Evrópukeppninnar þar sem fyrnasterkt lið Serbíu mætir í Laugardalshöll. Hannes S. Jónsson formaður KKÍ staðfesti það við Karfan.is í gær að allir heimaleikir Íslands yrðu í beinni útsendingu hjá RÚV.
,,Þar sem mikill áhugi er fyrir landsliðinu okkar munu allir leikirnir á Íslandi vera í beinni útsendingu á RÚV og eða aukarásinni sem við þekkum sem Ólympíurásina í dag. Flestir ættu því að geta fylgst með landsliðinu okkar í Evrópukeppninni sem er mikið ánægjuefni," sagði Hannes en hvað með útileiki liðsins?
Mjög líklega verða þrír til fjórir af útileikjunum í beinni svo næstum allir leikirnir verða í beinni útsendingu nema kannski einn til tveir þeirra. Við hjá KKÍ erum mjög ánægð með áhuga RÚV á landsliðinu og hvað þeir ætla að sýna mikið af leikjum. Við höfum einnig orðið vör við áhuga erlendra fjölmiðla og fengið töluvert af fyrirspurnum frá þeim. Áhugi þessara erlendu miðla er mikill enda í fyrsta sinn í langan tíma sem öll lið sitja við sama borð með þessu nýja keppnisfyrirkomulagi. Ég hvet þó að sjálfsögðu alla til að mæta í Laugardalshöll og styðja við bakið á strákunum, þeir eiga það svo sannarlega skilið."




