spot_img
HomeFréttirHanna tók 14 fráköst gegn Caldwell

Hanna tók 14 fráköst gegn Caldwell

Hanna Þráinsdóttir og Georgian Court Lions máttu þola tap í dag fyrir Caldwell Cougars í bandaríska háskólaboltanum, 43-58.

Það sem af er tímabili hafa Georgian Court unnið þrjá leiki og tapað átta.

Á 36 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Hanna 6 stigum, 14 fráköstum, stoðsendingu og 2 vörðum skorum.

Næsti leikur Hönnu og Georgian Court er þann 5. janúar gegn Jefferson.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -