Leikur Hamars/Þórs gegn Fjölni stóð sannarlega undir væntingum um spennandi og jafnan leik þegar liðin mættust í kvöld í undanúrslitum í bikarkeppni unglingaflokks. Fjölnismenn byrjuð leikinn betur og var greinilegt á öllum þeirra aðgerðum að nú átti að svara fyrir ósigurinn í deildinn frá síðustu viku.
Líkt og áður sagði byrjuðu Fjölnismenn betur og komust í 7 – 10 Hamar jafnaði síðan og komst yfir áður en fyrsta leikhluta lauk 26 – 22. Í öðrum leikhluta komust gestirnir yfir og með góðum spretti náðu þeir sjö stiga forustu og fóru inn í hálfleikinn með stöðuna 46 – 53.
Mikil hraði og góð hittni einkennandi fyrir fyrstu 20 mínúturnar. Í þriðja leikhluta sóttu heimamenn á og minkuðu muninn niður í þrjú stig fyrir síðasta leikhlutann 65 – 68 og er óhætt að segja að leynivopnið úr Þorlákshöfn, Baldur Þór Ragnarsson, hafi risið upp með öguðum leik og yfirvegun. Þegar fjórði og síðasti leikhlutinn hófst var orðið ljóst að spennan yrði ráðandi allt til loka og náðu heimamenn að skríða framúr og komust mest átta stigum framúr 81 – 73 þá hrökk Fjölnir í gang og minnkuðu muninn jafn og þétt.
Þegar 14,4 sek voru eftir af leiknum jafnar Ægir Þór leikinn (85 – 85) með risa þristi þar sem öll stemming virtist vera að snúast á sveif með gestunum. Heimamenn tóku leikhlé og fengu boltann inn á miðju og 3,4 sek eftir á klukkunni. Boltinn berst í hendurnar á Emil Þorvalds sem lyftir sér upp alveg sallarólegur og smellir niður einum tvisti þar sem einungis 0.2 voru eftir á klukkunni. Fjölnir reyndi skot yfir allan völlinn en gekk ekki og Hamar/Þór komið í úrslitaleik unglingaflokks í bikar annað árið í röð.
Líkt og áður sagði telftu heimamenn fram leynivopni út höfninni í kvöld þar sem Baldur Þór spilaði fyrsta leikinn með unglingaflokki í vetur og spilaði hann eins og sá sem valdið hefur, var bæði stigahæstur (18 stig) og stoðsendingahæstur (5 stk) aukinheldur að rífa niður fjögur fráköst; enda tröll af burðum.
Hjá Fjölni var Tómas Heiðar Tómasson með 21 stig og Ægir Þór Steinarsson bætti við 18 stigum. Emil Karel gerði 17 stig hjá Hamri/Þór og Ragnar Natahanaelsson gerði 15 stig og tók 18 fráköst.
Mynd/ thorkarfa.com: Baldur Þór Ragnarsson lék vel fyrir Hamar/Þór í unglingaflokki í kvöld.
Umfjöllun: Daði Steinn





