HomeFréttirHálsmeiðsli héldu Hlyn frá leiknum gegn ÍR

Hálsmeiðsli héldu Hlyn frá leiknum gegn ÍR

Hlynur Bæringsson lék ekki með Stjörnunni í gær þegar liðið tapaði fyrir ÍR í átta liða úrslitum Dominos deildar karla. Óvissa hafði verið með þátttöku Hlyns í leiknum eftir atvikið í leik þrjú þar sem Ryan Taylor veitti Hlyni vænt högg svo Hlynur lág óvígur á gólfinu. 

 

Nokkur umræða átti sér stað eftir leik um hvort Hlynur hefði fengið heilahristing en ljóst var að höfuðhöggið sem hann fékk var nokkuð þungt. Samkvæmt fréttum mun Hlynur ekki hafa tekið þátt í æfingu daginn fyrir leik en engar áhættur voru teknar. 

 

Hrafn Kristjánsson sagði svo í viðtali við Karfan.is eftir leikinn í gær að við frekari skoðun hafi komið í ljós að Hlynur hafi kennt sér meins í hálsi. Hann eigi sögu af brjósklosi í hálsi og því ekki ráðlagt að taka neinar áhættur með það. Það voru því að lokum hálsmeiðlin sem héldu honum endanlega frá leiknum en þau hafa tekið sig upp aftur eftir höggið í leik þrjú.

 

Viðbót: Í samtal við Karfan.is sagði Hlynur sjálfur að það var brjósklosið sem var kornið sem fyllti mælinn en höfuðhöggin hafi þó verið helsta ástæða þess að hann missti af leiknum.

 

Vonandi eru meiðsli Hlyns ekki alvarleg en næstu leikir sem hann ætti að leika eru landsleikir í júní. Tímabilinu er lokið hjá Stjörnunni en engin áhætta var tekin með háls- og höfuðmeiðsl enda umræðan mikil um slík meiðsli í umræðunni síðustu misseri. 

 

Hér að neðan má sjá viðtal við Hrafn Kristjánsson þar sem hann fer yfir meiðsli Hlyns. 

 

Fréttir
- Auglýsing -