HomeFréttirGuðmundur í leikmannahóp UMFN í kvöld

Guðmundur í leikmannahóp UMFN í kvöld

Guðmundur Jónsson verður í leikmannahóp UMFN í kvöld þegar grænir taka á móti KR í Iceland Express deild karla. Guðmundur hefur verið frá vegna ökklameiðsla síðan 16.janúar en reiknað var með í upphafi að hann yrði frá í 4-6 vikur hið minnsta og jafnvel út tímabilið. 
Það kom í ljós við myndatökur að hann hafði rifu á liðbandi og var í gypsi fyrst um sinn. Hann hefur verið í stífri endurhæfingu og á rétt tæpum 4 vikum er hann allavega kominn í leikmannahóp UMFN en það verður svo að koma í ljós í kvöld hversu mikinn þátt hann tekur í leiknum gegn KR í Ljónagryfjunni.
 
Það þarf ekkert að fara mörgum orðum um styrk Guðmundar, en hann hefur verið annálaður varnarmaður í gegnum tíðina auk þess sem hann var næststigahæsti leikmaður liðsins þegar hann meiddist, með 14,5 stig á leik.
 
Fréttir
- Auglýsing -