Stjórn körfuknattleiksdeildar Grindavíkur hyggst byggja barna- og unglingastarf félagsins upp af krafti og skapa öflugt umhverfi fyrir grindvísk börn og ungmenni, bæði þau sem búa í Grindavík og þau sem eru búsett annars staðar.
Í því skyni leitar deildin að áhugasömu fólki til að taka þátt í barna- og unglingaráði. Á komandi vetri er stefnt að því að bjóða upp á reglulegar æfingar á virkum dögum, afreksæfingar um helgar ásamt afreksbúðum.
Markmiðið er að byggja upp starfið saman, skapa tækifæri og tryggja að körfuboltinn haldi áfram að tengja börn og ungmenni við Grindavík. Áhugasamir eru hvattir til að hafa samband fyrir 17. ágúst nk.




