HomeBónus deildinBónus deild karlaGrindavík niðurlægði Valsmenn

Grindavík niðurlægði Valsmenn

Mikil eftirvænting ríkti fyrir oddaleik Grindavíkur og Vals í kvöld. Staðan í einvíginu var 2-2 og allir leikir liðanna fram að þessu höfðu verið spennandi og skemmtilegir áhorfs.

Það var stútfullt hús og blússandi stemning í Grindavík. Valsmenn byrjuðu leikinn betur og leiddu að loknum fyrsta leikhluta, en það var allt annað Grindavíkurlið sem mætti til leiks í þeim öðrum. Þeir hreinlega völtuðu yfir Valsmenn það sem eftir lifði leiks. Heimamenn héldu uppteknum hætti í þriðja leikhluta og tryggðu sér nánast farseðilinn í úrslitin þar. Grindavík vann að lokum sannfærandi sigur, 109-82.

Leikurinn byrjaði af miklum krafti og liðin skiptust á að skora. DeAndre Kane sá um að skora fyrstu sjö stig heimamanna og fór hreinlega hamförum í fyrsta leikhluta, bæði í vörn og sókn. Hann virtist nánast tilneyddur til þess, þar sem aðrir leikmenn liðsins áttu erfitt með að hitta ofan í körfuna til að byrja með. Það fór svo að gestirnir leiddu 20-28 eftir fyrsta leikhluta.

Grindavík sýndi mátt sinn í öðrum leikhluta

Liðunum gekk brösulega að skora í byrjun annars leikhluta og mikil barátta var á báðum endum vallarins. Um miðjan leikhlutann fór Pargo hins vegar í gang; hann setti niður glæsilegan þrist og gaf skömmu síðar laglega stoðsendingu á Kane. Grindavík komst yfir og við það fylltust heimamenn sjálfstrausti. Pargo hélt áfram að blómstra og Grindavík gjörsamlega rústaði gestunum í þessum hluta leiksins. Heimamenn unnu leikhlutann 30-12 og gengu til búningsherbergja með tíu stiga forystu, 50-40.

Valsmenn ætluðu ekki að láta rasskella sig í þriðja leikhluta. Callum setti niður tvo þrista snemma, en heimamenn voru duglegir að taka sóknarfráköst og refsa í kjölfarið. Munurinn jókst jafnt og þétt og Grindavíkurliðið leit fáránlega vel út. Þeim voru engin bönd skorðuð og Valsmenn áttu engin svör. Aftur skoruðu Grindvíkingar yfir 30 stig í einum leikhluta og nánast kláruðu leikinn fyrir lokaleikhlutann, en staðan var þá 81-63.

Fóstbræðurnir sáu um hitann og þungann

Ef einhver bjóst við kraftaverki frá gestunum í fjórða leikhluta, þá varð sá hinn sami fyrir vonbrigðum. Grindvíkingar voru með fullan fókus og ætluðu aldeilis ekki að gefa Valsmönnum tækifæri á að gera leikinn spennandi. Grindavík „grillaði“ gestina gjörsamlega og sigldi heim stórsigri, 109-82.

Hjá Grindavík voru fóstbræðurnir Pargo og Kane stórkostlegir. Kane skilaði 29 stigum og tók 14 fráköst, á meðan Pargo var með 25 stig og 9 fráköst. Ragnar Örn átti einnig frábæra innkomu og setti niður 18 stig. Callum var einn fárra sem sýndu lífsmark hjá Val með 15 stig og Woods skoraði 22.

Valsmenn eru þar með komnir í sumarfrí en Grindavík mætir Tindastóli í úrslitaeinvíginu um Íslandsmeistaratitilinn.

Tölfræði leiks

Viðtöl / Sigurbjörn Daði Dagbjartsson

Fréttir
- Auglýsing -