HomeBónus deildinBónus deild kvennaGrindavík fór á kostum í Laugardalshöll og skoraði 104 stig gegn Ármanni 

Grindavík fór á kostum í Laugardalshöll og skoraði 104 stig gegn Ármanni 

Grindavíkurkonur hófu tímabilið í Bónus deild kvenna af miklum krafti með 104–65 stórsigri gegn Ármanni í Laugardalshöll í kvöld. Ármann hélt í við gestina í fyrsta leikhluta en eftir það tóku Grindvíkingar öll völd á vellinum, juku forskotið jafnt og þétt og gerðu endanlega út um leikinn með mikilli keyrslu í síðari hálfleik.  

Sóknarleikur Grindavíkur var sérlega beittur og skilvirkur, en liðið hitti úr 17 þriggja stiga skotum (45%) og gaf heilar 32 stoðsendingar í leiknum.

Abby Claire Beeman átti stórkostlegan leik fyrir Suðurnesjakonur, skoraði 29 stig og dreifði spilinu glæsilega með 13 stoðsendingum. Tegan Graham skilaði 19 stigum og sjö fráköstum, og Farhiya Abdi bætti við 16 stigum. Þá átti Ellen Nyström einnig flotta frammistöðu með sjö fráköst og sex stoðsendingar.  

Hjá heimakonum í Ármanni báru tveir leikmenn uppi sóknina. Edyta Ewa Falenczyk var stigahæst með 22 stig og tók níu fráköst, á meðan Diamond Alexis Battles skoraði 20 stig og gaf sjö stoðsendingar. Ármann tapaði hins vegar boltanum 24 sinnum í leiknum og nýtti Grindavík það miskunnarlaust með því að stela 16 boltum og refsa grimmt í hraðaupphlaupum.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -