Grindavík er bikarmeistari í unglingaflokki kvenna eftir 64-62 spennusigur gegn Haukum í úrslitaviðureign liðanna í Ljónagryfjunni. Grindavík hafði undirtökin allan tímann en Haukar freistuðu þess að stela sigrinum á lokasprettinum en höfðu ekki erindi sem erfiði. Íris Sverrisdóttir var valin besti maður leiksins með 19 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta.
Helena Hólm sparkaði leiknum í gang með þriggja stiga körfu fyrir Hauka. Íris Sverrisdóttir var aðeins of bráð í upphafi leiks og fékk snemma þrjár villur í Grindavíkurliðinu. Alma Rut Garðarsdóttir steig vel upp í liði Grindavíkur í fjarveru Írisar og gular náðu frumkvæðinu og leiddu 17-20 eftir fyrsta leikhluta.
Dagmar Traustadóttir reif Grindvíkinga vel frá Haukum með þriggja stiga körfu snemma í öðrum leikhluta og staðan orðin 21-28 Grindavík í vil. Stelpurnar úr Röstinni voru töluvert ákveðnari í öðrum leikhluta og léku góða vörn sem endurspeglaðist í ráðaleysi Hauka sóknarlega. Hafnfirðingar höfðu þó ekki sagt sitt síðasta heldur tóku fína rispu undir lok fyrri hálfleiks og náðu að minnka muninn í 29-35 og þannig stóðu leikar í leikhléi.
Helena Brynja Hólm var komin með 11 stig í liði Hauka í hálfleik en þær Íris Sverrisdóttir og Alma Rut Garðarsdóttir voru báðar með 9 stig í liði Grindavíkur.
Í upphafi síðari hálfleiks voru bæði lið farin að glíma við töluverð villuvandræði en framan af leikhlutanum háði það hvorugum aðila þar sem bæði lið voru æði mistök og með laka skotnýtingu og eftir sex mínútur höfðu Haukar gert 4 stig gegn 3 frá Grindavík og staðan 33-38 Grindavík í vil.
Síðustu mínúturnar í þriðja leikhluta voru þó líflegri þar sem Grindvíkingar héldu Haukum enn í skefjum og leiddu 42-50 fyrir fjórða leikhluta. Mary Sicat átti þar stóran þátt með mikilvægum Grindavíkurþrist á lokasekúndum leikhlutans.
Svæðisvörn Hauka var upp á sitt besta í fjórða leikhluta og Haukar nálguðust Grindavík en gular náðu alltaf að slíta sig frá. Ragna Margrét Brynjarsdóttir minnkaði muninn í 56-57 fyrir Hauka þegar rúmar tvær mínútur voru til leiksloka en skömmu síðar varð Helena Brynja Hólm frá að víkja í liði Hauka sökum krampa í fæti og lék hún ekki meira með í leiknum.
Það var svo ekki fyrr en ein mínúta var til leiksloka að hlutirnir fóru að gerast. Dagbjört Samúelsdóttir kom Haukum yfir í fyrsta sinn síðan í stöðunni 3-2 er hún setti niður tvö vítaskot og Haukar komnir yfir 58-57. Skömmu síðar brenndu Haukar af tveimur vítum og strax í næstu Grindavíkursókn setti Íris niður stóran þrist og breytti stöðunni í 58-62 fyrir Grindavík.
Bryndís Hanna Hreinsdóttir var búin að reyna ýmislegt í liði Hauka í dag en aldrei fann hún körfuna fyrr en 13 sekúndur voru til leiksloka og þá mætti hún með þriggja stiga körfu og staðan orðin 61-62 fyrir Grindavík og spennan í algleymingi. Hinum megin var brotið á Írisi Sverrisdóttur sem setti niður bæði vítin og staðan 61-64 fyrir Hauka þegar 11 sekúndur voru til leiksloka.
Haukar þurftu þriggja stiga körfu til að knýja fram framlengingu en í óðagoti síðustu sóknarinnar ákvað Dagbjört Samúelsdóttir að keyra á körfu Grindavíkur og hitti ekki úr skoti sínu en brotið var á henni og Dagbjört hélt á línuna. Hún hitti úr fyrra vítinu og staðan 62-64 fyrir Grindavík og síðar brenndi hún viljandi af því seinna í von um að sínir liðsmenn myndu ná frákastinu og blaka boltanum ofan í til að tryggja framlengingu. Svo varð ekki þar sem Grindavík náði frákastinu og fagnaði sigri.
Íris Sverrisdóttir var valin besti maður leiksins með 19 stig, 6 fráköst og 4 stolna bolta en stigahæst var Alma Rut Garðarsdóttir með 20 stig. Hjá Haukum var Helena Brynja Hólm með 22 stig og 6 fráköst en næst henni kom Ragna Margrét Brynjarsdóttir með 13 stig, 17 fráköst og 6 stoðsendingar.
Dómarar leiksins: Kristinn Óskarsson og Jakob Árni Ísleifsson




