spot_img
HomeFréttirGrikkir og Belgar í undanúrslit í fyrsta sinn

Grikkir og Belgar í undanúrslit í fyrsta sinn

Þá er ljóst hvaða fjögur lið leika í undanúrslitum FIBA EuroBasket kvenna í Tékklandi en Grikkland og Belgía skráðu sig á spjöld sögunnar í gær með því að komast í fyrsta sinn í undanúrslit.

Belgar lögðu Ítali 79-66 og Grikkland valtaði yfir Tyrkland 84-55. Þá komst Spánn einnig áfram með 67-47 sigri á Lettlandi og Frakkar komust áfram með 67-40 sigri á Slóvakíu

Belgar sem hafa enn ekki tapað leik á mótinu mæta Spáni í undanúrslitum og þá mætast Grikkir og Frakkar en báðir leikirnir fara fram á morgun og svo gull og bronsleikurinn á sunnudag.

Mynd/ FIBA Europe – Þær grísku eru komnar í undanúrslit í fyrsta sinn.

Fréttir
- Auglýsing -