spot_img
HomeFréttirGolfmót körfuboltamanna 2015

Golfmót körfuboltamanna 2015

Golfmót körfuboltamanna í ár fer fram á Víkurvelli í Stykkishólmi, föstudaginn 12. júní og er það í 16. sinn sem mótið er haldið. Mótið er með hefðbundnu sniði og allir ræstir út samtímis kl. 13:00 og eru allir keppendur hvattir til að mæta tímalega.

Á mótið eiga erindi allir þeir sem einhvern tíman hafa komið nálægt körfubolta, sem leikmenn, þjálfarar, dómarar, stjórnarmenn, sjálfboðaliðar félaga eða á einhvern annan hátt og eru að fikta við golfið. Makar eru einnig að sjálfsögðu velkomnir. Áhugasamir hvattir til að áframsenda þessar upplýsingar um mótið á alla þá sem þið teljið að eigi erindi í það.

Leikin verður 18 holu punktakeppni, bæði með og án forgjafar, þar sem hámarksforgjöf hjá körlum er 24 og hjá konum 28. 

Skráning er á golf.is eða hjá Ríkharði Hrafnkelssyni í síma 848-1988 eða á netfanginu [email protected] (nafn, kennitala, forgjöf).

Að venju er öll aðstoð við útvegun verðlauna mjög vel þegin. 
Þátttökugjald í mótið er kr. 3.500.-

Fréttir
- Auglýsing -