spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaGóður leikur Þóris Guðmundar ekki nóg gegn Burgos

Góður leikur Þóris Guðmundar ekki nóg gegn Burgos

Þórir Guðmundur Þorbjarnarson og Oviedo máttu þola tap í kvöld fyrir Burgos í Leb Oro deildinni á Spáni, 89-64.

Oviedo eru eftir leikinn í 17. sæti deildarinnar með fimm sigra og fimmtán töp það sem af er tímabili.

Á um 23 mínútum spiluðum í leiknum skilaði Þórir Guðmundur 13 stigum, 6 fráköstum og 2 stoðsendingum, en hann var framlagshæstur í liði Oviedo í leiknum með 20 framlagsstig.

Næsti leikur Þóris og Oviedo er eftir landsleikjahlé þann 5. mars gegn Juaristi.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -