Íslenska U20-landslið karla hefur farið frábærlega af stað á Evrópumótinu í Bratislava. Strákarnir unnu öruggan 26 stiga sigur á Kýpur í dag, 83-57, og eru því með fullt hús stiga eftir tvo fyrstu leiki sína á mótinu.
Ísland hóf leik á EM í gær með því að valta yfir Armeníu, 97-63. Næsti leikur liðsins er strax á morgun þegar strákarnir mæta Kósóvó.
Gerðu út um leikinn í upphafi
Íslenska liðið lagði grunninn að sigrinum strax í fyrsta leikhluta þar sem einstefnan var algjör. Strákarnir skoruðu 24 stig gegn aðeins fjórum stigum Kýpverja og eftir það var eftirleikurinn auðveldur.
Stigahæstu leikmenn
Birgir Halldórsson og Viktor Lúðvíksson leiddu sóknarleikinn og skoruðu 18 stig hvor. Viktor átti sérstaklega flottan leik því hann tók einnig ellefu fráköst. Lars Erik Bragason lét líka mikið að sér kveða og setti niður 17 stig.



