Eins og greint var frá á þriðjudaginn síðastliðinn, höfðu NBA félögin Cleveland Cavaliers og Boston Celtics gert með sér samning sem sendi Kyrie Irving til Celtics, en í staðinn færu Isaiah Thomas, Jae Crowder, Ante Zizic og fyrstu umferðar valréttur Brooklyn Nets í nýliðavalinu 2018 (sem Celtics áttu áður réttinn á) til Cavaliers.
Nú virðast vera komin einhver vandræði með þetta, því eins og venju samkvæmt þurfa leikmenn að standast læknisskoðun til þess að skipti geti gengið í gegn. Samkvæmt Adrian Wojnarowski hjá ESPN er það Isaiah Thomas sem á í erfiðleikum með að uppfylla þau skilyrði sem læknisskoðunin felur í sér, en leikmaðurinn meiddist á mjöðm í úrslitum Austurstrandarinnar á síðasta tímabili og spilaði ekki meira það tímabilið. Leiddar voru líkur að því að mögulega væru þau meiðsl leikmannsins alvarlegri heldur en haldið var fram upphaflega.
Eftir að skiptin voru tilkynnt var framkvæmdarstjóri Boston Celtics spurður að því hvort að meiðsl Thomas hafi átt þátt í þeirri ákvörðun þeirra að senda hann til Cavaliers. Sagði hann þá að svo hafi verið að einhverju leyti.
Nú er ekkert tekið fram um hvort þessi viðskipti muni fyrir víst ganga til baka, en ef satt reynist með að meiðsl Thomas séu í raun alvarlegri heldur en áður var haldið fram, verður að telja ansi líklegt að Cavaliers vilji fá eitthvað meira í staðinn fyrir stjörnuleikmann sinn, Kyrie Irving, hvort sem það verður frá Celtics eða öðru liði.
Bleacher Report á Twitter:
— Bleacher Report NBA (@BR_NBA) August 26, 2017
The Ringer skrifar um hvað gerist ef Cavaliers samþykkja Thomas ekki:
What should the Cavs do if Isaiah Thomas failed his physical? @Paolouggetti https://t.co/sfae5vYtOH
— The Ringer (@ringer) August 26, 2017
Adrian Wojnarowski á Twitter:
Sources: After Isaiah Thomas underwent physical today, Cavs still evaluating injured hip and weighing options w/ completion of Irving deal.
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) August 26, 2017
Thomas traveled to Cleveland, took exam and flew back out of town, sources said. All players must pass physical, or a deal can be voided.
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) August 26, 2017
As one source involved in the process involving Thomas' medical clearance told ESPN late Friday night, "It's a very sensitive situation."
— Adrian Wojnarowski (@wojespn) August 26, 2017