spot_img
HomeFréttirFyrsti leikur U 18 í dag

Fyrsti leikur U 18 í dag

{mosimage}

A-deild Evrópukeppni U 18 ára karla hefst í Grikklandi í dag. Íslendingar eru í riðli með Spánverjum, Króötum og Frökkum og mæta Spánverjum í sínum fyrsta leik í dag kl. 19 að staðartíma eða kl. 16 að íslenskum tíma. 

Ferðalagið á leikstað var strembið. Eftir sólarhringsdvöl í London hélt hópurinn með flugi til Aþenu og loks med rútu til Olimpiu en sú ferð tók 5 klst. Sólin var komin upp er leikmenn gengu til náða. Aðbúnaður er mjög góður, gisting og fæði til fyrirmyndar. Hótelið er í talsverðri fjarlægð frá skarkala heimsins.

 

www.kki.is

Mynd: Hörður Axel verður án efa í eldlínunni með U 18 ára liðinu

Fréttir
- Auglýsing -