HomeFréttirFyrsta tap Þorlákshafnar

Fyrsta tap Þorlákshafnar

 
Þór frá Akureyri var fyrsta liðið í 1. deildinni til þess að bera sigurorð af Þór Þórlákshöfn þegar þeir fyrrnefndu fögnuðu öruggum 96-76 sigri. Leikurinn var afar jafn í fyrri hálfleik en gestirnir frá Þórlákshöfn voru þó skrefinu á undan heimamönnum. Heimamenn komu dýrvitlausir til leiks í þeim síðari og náðu að byggja upp gott forskot með góðri vörn og hittni utan teigs. Norðanmenn náðu mest 30 stiga forskoti í fjórða leikhluta en gáfu aðeins eftir undir lok leiksins og lönduðu því sanngjörnum 96-76 sigri.
Mikið jafnræði var þó með liðunum í upphafi leiks og skiptust liðin á að skora. Það var undir lok fyrsta leikhluta sem gestirnir tóku góðan sprett og náðu sex stiga forskoti, 13-19. Heimamenn komu þó grimmari til leiks í öðrum leikhluta og náðu að minnka forskot gestanna niður í eitt stig, 25-26. Heimamenn sýndu mikla baráttu og náðu smá saman að ná yfirhöndinni en gestirnir voru þó aldrei langt á eftir. Bæði lið sýndu fín tilþrif en Vladimir Bulut fór fyrir gestunum á meðan skorið dreifðist örlítið meir hjá heimamönnum. Með góðri vörn náðu heimamenn þó sex stiga forystu og leiddu því leikinn í hálfleik, 48-42.
 
Heimamenn mættu vel stemmdir til leiks í síðari hálfleik og var ljóst frá byrjun að þeir ætluðu að selja sig dýrt í kvöld. Gestirnir áttu í miklum vandræðum með vörn heimamanna og áttu jafnframt erfitt að stöðva þá í sóknarleiknum. Norðanmenn náðu 13 stiga forskoti, 59-46 um miðbik 3. fjórðungs sem varð til þess að Benedikt Guðmundsson þjálfari gestanna tók leikhlé. Eftir leikhléið skiptu gestirnir yfir í svæðisvörn. Heimamann leystu þó svæðisvörn gestanna með mikilli yfirvegun og settu niður skot utan af velli. Áður en leikhlutanum lauk, voru heimamenn komnir með þægilega forystu og leiddu leikinn með 17 stigum, 75-58 fyrir fjórða og síðasta fjórðunginn. Heimamenn virtust hreinlega að valta fyrir gestinna í upphafi fjórða leikhluta og náðu mest 30 stiga forskoti. Heimamenn slökuðu þó aðeins á undir lok leiksins og leyfðu sem flestum að spila. Gestirnir náðu að minnka forskotið niður í 20 stig en komust ekki lengra og heimamenn fögnuðu því afar þýðingarmiklum sigri, 96-76 og urðu þar með fyrsta liðið til að bera sigurorð af Þór Þórlákshöfn.
 
 
Atkvæðamestir heimamanna: Konrad Tota 32 stig, Ólafur Torfason 19 stig (16 fráköst), Óðinn Ásgeirsson 17 stig (10 fráköst), Dimitar Petrushev 13 (7 stoðsendingar), Wesley Hsu 5, Hrafn Jóhannesson 3, Baldur Már Stefánsson 3, Benedikt Pálsson 3, Sindri Davíðsson 1
 
Atkvæðamestir gestanna: Vladimar Bulut 20 stig, Magnús Sigurðsson 18, Baldur Þór Ragnarsson 18, Þorsteinn Már Ragnarsson 11, Hallgrímur Brynjólfsson 4, Bjarki Gylfason 3 og Emil Einarsson 2
 
Umfjöllun: Sölmundur Karl Pálsson
Fréttir
- Auglýsing -