spot_img
HomeBónusdeildinBónusdeild karlaFyrrum skólabróðir Helenu í Gryfjuna - Zvonko Buljan til Njarðvíkur

Fyrrum skólabróðir Helenu í Gryfjuna – Zvonko Buljan til Njarðvíkur

Njarðvík hefur samið við Zvonko Buljan frá Króatíu um að leika með liðinu á komandi tímabili í Dominos deild karla.. Buljan er 33 ára og 206 sm miðherji sem útskrifaðist úr TCU háskólanum árið 2010 með 12,2 stig og 8,6 fráköst. Þess má geta að Helena Sverrisdóttir lék einmitt með kvennaliði TCU á þessum árum.

Leikmaðurinn hefur spilað ansi víða síðan og má þar nefna þýsku Bundesliguna, Ungverjaland, Kýpur, Slóveníu, Grikkland, Argentínu, Sviss, Belgíu og Rúmeníu og hann lék meðal annars í Euro Cup Challenge árin sem hann var í Þýskalandi, Kýpur, Ungverjalandi og Slóveníu. Þá varð hann tvöfaldur meistari í Slóveníu árið 2014.

Fréttir
- Auglýsing -