Kristófer Acox og félagar í Furman töpuðu í gærkvöldi naumt gegn liði Wofford 60:62. Kristó skoraði 3 stig og tók 5 fráköst á 21 mínútu í leiknum. Furman mun mæta Citadel herskólanum næst komandi föstudag í 1. umferð úrslitakeppni South Conference riðilsins. Nýlega mættust þessi lið á heimavelli Furman þar sem Citadel hafði sigur með 6 stigum.