Taiwo Badmus og Ade Murkey leiddu Skagfirðinga til sigurs í Englandi í kvöld þegar liðið lagði Bristol Flyers að velli, 85–68, í Norður-Evrópudeildinni (ENBL). Badmus var stigahæstur með 21 stig og 9 fráköst, en Murkey skilaði glæsilegri tvennu með 16 stigum og 12 fráköstum.
Stólarnir gerðu nánast út um leikinn áður en flautað var til leikhlés og leiddu með 17 stiga mun í hálfleik, 45–28. Heimamenn í Bristol áttu engin svör við öflugum leik Tindastóls sem sigldi öruggum sigri í höfn.
Með sigrinum situr Tindastóll á toppi deildarinnar með sex stig eftir að hafa unnið alla þrjá leiki sína í keppninni til þessa – sem allir hafa verið á útivelli.




