Haukar sigruðu Keflavík í oddaleik um sæti í undanúrslitum Dominos deildarinnar fyrr í kvöld að Ásvöllum í Hafnarfirði. Keflavík er því úr leik, en Haukar munu mæta Íslandsmeisturum síðustu fjögurra ára, KR, í næstu umferð.
Karfan spjallaði við þjálfara Keflavíkur, Friðrik Inga Rúnarsson, eftir leik í DB Schenker Höllinni. Fór Friðrik yfir tímabilið með Keflavík, úrslitakeppnina og leik kvöldsins. Aðspurður hvað framtíðin bæri í skauti sér sagðist Friðrik svo hættur þjálfun.
Ferill Friðriks sem þjálfara hófst fyrir rúmlega þrjátíu árum. Hefur hann þjálfað kvenna og karlalið Njarðvíkur, lið KR, lið Grindavíkur og nú síðast lið Keflavíkur. Þá var hann einnig þjálfari íslenska karlalandsliðsins, sem og hefur hann þjálfað yngri landslið.
Þó Friðrik sé ekki gamall maður, þá eru komin heil 27 ár frá því að hann vann sinn fyrsta Íslandsmeistaratitil. Þá sem 21 árs gamall þjálfari karlaliðs Njarðvíkur árið 1991. Í heildina vann hann þann titil í þrjú skipti, tvo með Njarðvík og einn í Grindavík og bikarmeistaratitilinn í fjögur skipti, tvo í Njarðvík og tvo í Grindavík.
Ljóst er að um sjónarsviptir er að ræða úr íslenskum körfubolta, en þó Friðriki hafi ekki tekist að landa þeim stóra síðustu árin, geta allir verið sammála um það að þau lið sem að hann mætir með til leiks í úrslitakeppnina, hafa hvert og eitt einasta skilið blóðið, svitann og tárin eftir á gólfinu. Líkt og við urðum vitni að í Hafnarfirði í kvöld.
Karfan vill nota tækifærið og þakka þjálfaranum fyrir það sem hann hefur komið með að borðinu og óska honum góðs gengis í því sem hann tekur sér fyrir í framtíðinni. Því sannarlega fer þar maður sem gerði okkar frábæru íþrótt ennþá fallegri.



