HomeNeðri deildir1. deild karlaFramlengja við miðherjann Felix Heiðar

Framlengja við miðherjann Felix Heiðar

ÍA hefur framlengt samning sinn við miðherjann Felix Heiðar Magnason út næstu leiktíð.  

Felix, sem er fæddur árið 2006, er uppalinn Skagamaður og stór og stæðilegur leikmaður undir körfunni. Í tilkynningu félagsins kemur fram að mikil ánægja ríki með áframhaldandi samstarf en Felix hefur lagt mikið á sig undanfarin misseri og verður spennandi að fylgjast með frekari framgöngu hans í gulu treyjunni á komandi keppnistímabili.

Fréttir
- Auglýsing -