HomeFréttirFrábæru móti lokið með tapi í úrslitum en strákarnir spila með þeim...

Frábæru móti lokið með tapi í úrslitum en strákarnir spila með þeim bestu á næsta ári

Íslenska U20 landslið karla í körfubolta lauk leik á Evrópumótinu í B-deild með úrslitaleik gegn Úkraínu. Lokatölur urðu 64–74 Úkraínumönnum í vil, en bæði lið voru samt sem áður búin að tryggja sér sæti í efstu deild fyrir leikinn.

Úkraína byrjaði leikinn betur og leiddi 18–13 eftir fyrsta leikhluta, en íslenska liðið elti allan tímann og tókst aldrei að brúa bilið alveg þrátt fyrir góðan þriðja leikhluta. Í fjórða leikhluta innsigluðu Úkraínumenn svo sigurinn með því að skora 24 stig gegn 18 stigum Íslands.

Ásmundur Ármannsson leiddi íslenska liðið í stigaskorun með 17 stig ásamt því að gefa 6 stoðsendingar. Magnús Svansson skilaði líka öflugri tvennu með 14 stig og 11 fráköst, en liðinu gekk erfiðlega í frákastabaráttunni þar sem Úkraína tók alls 47 fráköst gegn 34 fráköstum Íslands.

Frábær árangur strákanna á mótinu í Bratislava þýðir að þeir munu spila í A-deildinni með þeim bestu. Næsta sumar 2027 verður sögulegt þar sem bæði U20 karlaliðið og U20 kvennalið Íslands verða á meðal stórþjóðanna í A-deild, sem er risastór áfangi fyrir íslenskan körfubolta.

Tölfræði leiks

Fréttir
- Auglýsing -