HomeBónus deildinBónus deild kvennaFrábær þriðji leikhluti tryggði Keflavík sigur gegn Stjörnunni á Minningarmóti Óla Jó

Frábær þriðji leikhluti tryggði Keflavík sigur gegn Stjörnunni á Minningarmóti Óla Jó

Keflavík hafði betur gegn Stjörnunni, 78–62, í öðrum leik meistaraflokks kvenna á Minningarmóti Óla Jó í HS-Orku höllinni í kvöld.

Jafnræði var með liðunum framan af og var staðan hnífjöfn í hálfleik. Keflvíkingar gerðu hins vegar út um leikinn með rosalegum spretti í upphafi síðari hálfleiks þar sem þær völtuðu yfir Garðbæinga í þriðja leikhluta, 29–8. Með öruggt forskot í farteskinu gátu Keflvíkingar leyft yngri leikmönnum að spreyta sig í fjórða leikhluta og sigldu sigrinum þægilega í höfn, þrátt fyrir að argentínski leikmaðurinn og Hanna Gróa væru hvorugar með í kvöld.

Emelía fór fyrir liði Keflavíkur með 22 stig, þær Anna Ingunn og Anna Lára skiluðu 14 stigum hvor, Hannah Little skoraði 10 stig og Thelma Dís bætti við 8 stigum.

Hjá Stjörnunni var Diljá atkvæðamest með 17 stig, Elísabet skoraði 8 stig og Fanney bætti við 7 stigum. Þær Stina og Agnes skiluðu 6 stigum hvor, en mikil blóðtaka varð fyrir Stjörnuliðið í lok fyrri hálfleiks þegar bandarískur leikmaður þeirra meiddist og kom ekkert meira við sögu í leiknum eftir að hafa skorað 2 stig.

Fréttir
- Auglýsing -