Íslandsmeistarar Grindavíkur hafa gengið frá samningi við bosníska leikmanninn Mirza Bulic fyrir komandi tímabil. Bulic, sem er 209 cm öflugur framherji og miðherji, færir sig um set yfir til Grindavíkur eftir frábært tímabil í Bónusdeildinni með Keflavík.
Þar var hann í lykilhlutverki og skilaði að meðaltali 18 stigum, 9 fráköstum, 2,6 stoðsendingum og 22,3 í framlagi í leik, auk þess að ná sex tvöföldum tvennum.
Bulic býr yfir miklum styrk og reynslu, er öflugur frákastamaður og varnarmaður, en skartar einnig fjölbreyttum sóknarleik sem mun styrkja Grindavíkurliðið verulega á komandi tímabili.
Jóhann Þór Ólafsson, þjálfari Grindavíkur, segir Mirza vera leikmann sem þeir hafi fylgst vel með. Hann hafi þegar sýnt hvað hann getur í íslensku deildinni og passi einstaklega vel inn í það lið sem verið er að byggja upp. Sjálfur segist Bulic vera virkilega spenntur fyrir því að ganga til liðs við Grindavík, hlakka til að koma aftur til Íslands og geti ekki beðið eftir að spila fyrir framan stuðningsmenn félagsins á komandi tímabili.



