spot_img
HomeFréttirFrá Colorado til Kansas

Frá Colorado til Kansas

Fjölnismaðurinn Ólafur Ingi Styrmisson hefur ákveðið að færa sig um set innan bandaríska háskólaboltans.

Ólafur Ingi hefur verið á mála hjá Regis skólanum en mun frá næsta hausti vera liðsmaður eins sterkasta skóla annarar deildar háskólaboltans Emporia State í Kansas.

Ólafur Ingi fór út til Bandaríkjanna eftir 2022-23 tímabilið, en þá hafði hann leikið með Keflavík í efstu deild. Þar áður hafði hann alltaf leikið með uppeldisfélagi sínu í Fjölni.

Fréttir
- Auglýsing -