Jón Arnór Stefánsson þurfti að hvíla í síðasta leik Valencia þegar liðið bar sigur úr bítum gegn fyrrum félögum Jóns í Malaga. Spennan var mikil fyrir Jón að getað spilað leikinn sem varð svo honum að falli ef svo má segja. "Ég fer svo á æfingu núna fyrir Malaga leikinn, eða tveim til þrem dögum fyrir þann leik og ég fór bara of snemma af stað. Var of spenntur að spila gegn gamla félaginu mínu. Fékk bara sama tak í bakið eftir ca. 20 mínútna æfingu og í raun var það verra. Núna er ég bara í sjúkraþjálfun og er að styrkja þetta. Byrja að hreyfa mig og skjóta á morgun." sagði Jón Arnór í samtali við Karfan.is
"Ég meiddist sum sé í leik gegn Tenerife fyrir um tveimur vikum síðan. Ég fæ eitthvað tak í bakið, rétt fyrir ofan hægri rasskinn. Og það er einhver diskur í bakinu sem hefur snúist eða er eitthvað skakkur. Verð ekki með í Eurocup leiknum annað kvöld og stefni á að taka þátt í næsta leik í ACB sem er á sunnudag. Vonandi verður þetta ekkert svona langvarandi dæmi. Það er bara þannig að þegar bakið segir stopp þarf maður að hlusta. Þetta eru ekki svona meiðsli sem þú spilar með. Þetta er svona þursabit í rauninni. Ég fór bara niður á hnén þegar þetta gerðist og það var ekkert hægt að spila í gegnum þetta. Ég þarf bara að vera þolinmóður. Vonandi næ ég næsta leik og ef ekki þá ætti ekki að vera langt í að ég snúi aftur. Ekkert alvarlegt myndi ég segja." sagði Jón Arnór að lokum.
Valencia sigraði leikinn gegn Malaga 81:70.