LeBron James var réttilega valinn besti leikmaður úrslitaseríunnar í NBA deildinni í nótt. Sjálfur Bill Russell afhenti honum verðlaunagripinn sem heitir í höfuðið á goðsögninni. Aðspurður hvað hafi ferið mest í taugarnar á James þegar Miami tapaði í úrslitum í fyrra sagði hann að það væri að vera kallaður sjálfselsk persóna og sjálfselskur leikmaður.




