Keppni í Bónus deild kvenna í körfubolta hefst í kvöld með þremur leikjum í 1. umferð, en allir leikirnir hefjast samtímis klukkan 19:15.
Í Vesturbænum tekur KR á móti Stjörnunni þar sem KR freista þess að hefja leiktíðina á heimasigri gegn Garðbæingum. Á sama tíma fær Ármann erfitt verkefni á heimavelli þegar Grindavík kemur í heimsókn.
Á Sauðárkróki er svo von á hörkuleik þegar Tindastóll tekur á móti bikarmeisturum Keflavíkur. Fyrstu umferðinni lýkur svo á morgun með tveimur leikjum þar sem Valur fær meistarana í Njarðvík í heimsókn og Haukar mæta Fjölni.
Leikir kvöldsins í Bónus deild kvenna:
19:15: KR – Stjarnan
19:15: Ármann – Grindavík
19:15: Tindastóll – Keflavík




