Gestirnir úr Grafarvoginum mættu í tæka tíð eftir krókaleið sem lá í gegnum Þingeyri, en Flugfélagið lenti þar í dag vegna veðurskilyrða á Ísafirði. Þeir létu það ekkert á sig fá og voru mættir tilbúnir í baráttuna í þessum botnslag. Heimamenn voru til alls líklegir eftir góðan sigur á Hamri fyrir tæpri viku síðan og gerðu flestir sér góðar vonir um hörkuleik.
Kappið bar ofurlítið fegurðina ofurliði framan af leik en hann var jafn og á vissan hátt spennandi. Samt var eins og leikmenn væru ekki alveg að keyra á fullum hraða á köflum. Liðin skiptust á að leiða leikinn og eftir fyrsta fjórðung var staðan 21-22 fyrir Fjölni. Í hálfleik höfðu þeir aukið forskot sitt í 42-46 og ennþá opinn leikur að sjálfsögðu. Eftir leikhlé virtust KFÍ menn aðeins sprækari en höfðu ekki árangur sem erindi og gengu gestirnir á lagið á þessum leikkafla sem var einn af vendipunktum leiksins. Fjölnismenn voru í kjölfarið mun baráttuglaðari flestir og sáust skrautlegar troðslur frá Brandon Brown, nýjum leikmanni sem lék í kvöld sinn fyrsta leik fyrir félagið.
Eftir þrjá leikhluta leiddu gestirnir 58-70 og úr miklum vanda að ráða fyrir Shiran þjálfara og leikmenn KFÍ. Eins og oft vill verða í þessari stöðu þróaðist leikurinn þannig að fljótlega fóru heimamenn að reyna að bjarga sér með 3ja stiga skotum sem stundum voru ansi ótímabær, en þeir náðu samt nokkrum ofan í. Það breytti samt engu því Fjölnismenn fundu ávalt svar og hrintu öllum áhlaupum KFÍ örugglega. Fóru leikar svo að lokum að Fjölnir sigraði með 7 stiga mun; 94-101.
Af Fjölnismönnum var Ægir Þór Steinarsson drjúgur að vanda, með 24 stig og 7 stoðsendingar. Brandon Brown gæti orðið þeim mikilvægur í næstu leikjum og virðist sterkur, en hann skilaði 27 stigum og 14 fráköstum. Jón Sverrisson kom afskaplega vel stemmdur til leiks í kvöld og blómstraði með 17 stig og 6 fráköst, og vert er að gefa honum auga á næstu misserum.
Erfitt er að taka nokkurn út úr jöfn liði KFÍ, en Nebojsa Knezevic skoraði 18 stig og Carl Josey setti 17 stig. Darko var með 11 stig en barðist vel á meðan hann var inná. Aðrir voru nokkuð frá sínu besta.
Dómarar: Sigmundur Már Herbertsson og Jón Guðmundsson, voru góðir og fá hrós fyrir flotta dómgæslu.
Umfjöllun og Ljósmynd: Helgi Sigmundsson





