spot_img
HomeÚti í heimiEvrópaFinnur Freyr: Markmiðið að skapa A landsliðs leikmenn

Finnur Freyr: Markmiðið að skapa A landsliðs leikmenn

Þessa stundina er Karfan stödd í Kisakallio í Finnlandi þar sem að Norðurlandamót yngri 16 og 18 ára landsliða fer fram. Leikar hófust í dag gegn Noregi, en þegar að þessi frétt er skrifuð er enginn leikja Íslands búinn.

Mikið af þjálfurum fylgja liðunum fjórum, en ásamt þeim þremur sem fylgja hverju liði er þar einnig yfirþjálfarinn Finnur Freyr Stefánsson. Við hann ræddi podcast Körfunnar í gærkvöldi á meðan hann fylgdist með æfingu undir 18 ára drengja í Susi 1 æfingasalnum á svæðinu.

Finnur fer yfir víðan völl í viðtalinu. Ræðir hver innkoma hans sé í þetta nýja starf yfirþjálfara, hver framtíð landsliðana sé, sem og hver framtíð hans sé, en hann tók við liði Horsens í dönsku úrvalsdeildinni á dögunum.

Umsjón: Davíð Eldur & Ólafur Þór

Dagskrá:

00:30 – Starf yfirþjálfara og framtíð landsliða

20:00 – Framtíð Finns í Danmörku

Fréttir
- Auglýsing -