Fimm leikir fóru fram í Maltbikarkeppninni. Fjórir leikir voru kvennamegin, en þar komust Keflavík, Skallagrímur, Snæfell og Njarðvík áfram í undanúrslitin.
Karlamegin var einn leikur. Í honum sigruðu Haukar heimamenn í Keflavík. Leikurinn sá fyrsti í 8 liða úrslitunum, en þrír leikir fara fram á morgun.
Úrslit dagsins:
Maltbikar kvenna – Átta liða úrslit:
Keflavík 99 – 79 KR
Snæfell 75 – 73 Valur
Njarðvík 77 – 74 Breiðablik
Skallgrímur 92 – 47 ÍR
Maltbikar karla – Átta liða úrslit:
Keflavík 74 – 83 Haukar




