Spennan fyrir komandi leiktíð í Bónusdeild karla heldur áfram að aukast og í nýjasta þætti Aukasendingarinnar voru góðir gestir í heimsókn, Heisi Högg og Jón Frí.
Auk þess að rýna í uppfærða spá og sögu helstu spútnikliða deildarinnar var rætt um stöðu leikmanna sem gætu þurft á breytingum að halda.
Í þættinum stilltu þeir upp fimm leikmanna lista yfir leikmenn sem Aukasendingin vill sjá færa sig um set og róa á önnur mið á komandi leiktíð. Umræðan snýst alls ekki um vanmat á þeirra hæfileikum — þvert á móti hefur þátturinn fulla trú á því að þessir kappar geti blómstrað og sýnt sitt rétta andlit í nýju umhverfi þar sem tækifærin og hlutverkin eru stærri.
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum. Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Topp 5: Leikmenn sem Aukasendingin vill sjá blómstra í öðru liði
1. Kristján Fannar Ingólfsson (ÍR)
2. Karl Kristján Sigurðsson (Álftanes)
3. Frosti Sigurðsson (Keflavík)
4. Unnsteinn Rúnar Kárason (Grindavík)
5. Stjörnuguttar




