Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla.
Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula.
Þá er farið yfir áhugaverðan lista yfir þá leikmenn sem teljast hvað hættulegastir á hálfum velli. Þetta eru leikmenn sem búa yfir þeim hæfileika að skapa sér hápósentuskot og knýja vörn andstæðinganna til að tvöfalda á sig, sem opnar leikinn fyrir öðrum.
Um er að ræða týpur sem stuðningsmenn treysta fyllilega þegar mikið liggur við og leikir eru í járnum. Þessir leikmenn láta vaða óhræddir, lenda sjaldan í vandræðum með boltann og hafa þann persónuleika sem þarf til að taka yfir heilu leikina þegar á reynir.
Umræðuna er hægt að nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Hættulegastir á hálfum velli
1. Remy Martin – Keflavík
2. Jeremy Pargo – Grindavík
3. Hilmar Smári – Stjarnan
4. Keyshawn Woods – Valur
5. Luka Gasic – Stjarnan





