Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla. Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula.
Sjónum er einnig beint að öðrum einvígum þar sem yfirburðir Tindastóls vöktu verðskuldaða athygli og lýst er yfir ákveðinni vantrú á gengi Grindvíkinga. Þá er spennan í hámarki fyrir oddaleik Vals og Keflavíkur, en gestirnir rýna í það hvað muni skilja á milli liðanna í lokaleiknum um sæti í undanúrslitum.
Aukasendingin er aðgengileg á öllum veitum undir nafni Körfunnar. Þátturinn er í boði Kristalls, Lykils, Bónus, Lengjunnar og Tactica.





