HomeBónus deildinBónus deild karlaFimm frábærir leikmenn sem geta gert enn betur

Fimm frábærir leikmenn sem geta gert enn betur

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fara þeir Árni Jó, betur þekktur sem Strikerinn, og Jónfrí yfir dramatíkina í 8-liða úrslitum Bónus deildar karla.

Miðpunktur umræðunnar er svakalegur sigur Stjörnunnar gegn KR, sem sendi Vesturbæinga beint í sumarfrí ásamt liðum ÍR og Njarðvíkur. Farið er yfir hvernig Garðbæingar sýndu mikla seiglu á meðan vonbrigðin í Vesturbænum eru rædd í þaula.

Hérna er þátturinn á Spotify

Í nýjasta þættinum var farið yfir þá sem hafa ekki alveg náð sínum fyrri hæðum í síðustu leikjum. Þessir leikmenn eru lykilmenn í sínum liðum og þurfa að sýna meiri stögðugleika en þeir hafa gert í síðustu leikjum.

Væntingarnar til þessara leikmanna eru miklar enda hafa þeir margir hverjir borið lið sín uppi áður í vetur. Hvort sem um er að ræða skotnýtingu, vinnu í vörn eða almenna leiðtogahæfni, þá er ljóst að þeir eiga talsvert inni miðað við getu. Það verður fróðlegt að sjá hverjir þeirra svara kallinu þegar spennan magnast enn frekar á parketinu.

Umræðuna er hægt að nálgast í síðustu Aukasendingu sem aðgengileg er hér fyrir ofan sem og á öllum hlaðvarpsveitum undir nafni Körfunnar.

Kristófer er stórkostlegur leikmaður sem á enn helling inni samkvæmt Aukasendingunni

Þessir eiga mest inni

  1. Egor Koulechov – Keflavík
  2. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson / Toms Elvis Leimanis – KR
  3. Hilmar Pétursson – Keflavík
  4. Kristófer Acox – Valur
  5. Sigtryggur Arnar Björnsson – Tindastól

Næstu inn

Remy Martin – Keflavík

Kári Jónsson – Valur

Fréttir
- Auglýsing -