HomeBónus deildinFimm bestu íþróttahús landsins

Fimm bestu íþróttahús landsins

Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar gerðu þeir Davíð Eldur, Mummi Jones og Óli Dós upp fyrstu umferðina í Bónusdeild karla. Þar var farið yfir tíu stærstu ofviðbrögðin eftir opnunarleikina, rætt um hversu slök Stjarnan var, velt upp spurningum um hvort DeAndre Kane sé enn týndur, farið yfir vandræði KR og Grindavíkur með atvinnumenn, rýnt í fimm liða fallpakkann og stórleik Valsmanna.

Samhliða því tóku félagarnir fyrir aðstæðurnar í kringum leikina og völdu fimm bestu íþróttahús landsins – sali sem skara fram úr bæði hvað varðar upplifun áhorfenda og aðstöðu fyrir fjölmiðlafólk:

Sigursælt lið Snæfells fyrir ekki svo löngu

Topp 5: Bestu íþróttahús landsins (fyrir áhorfendur og fjölmiðla)

1. Síkið (Sauðárkrókur)

Heimavöllur Tindastóls trónir á toppnum. Nándin við völlinn og látin í stúkunni gera Síkið að einu magnaðasta körfuboltahúsi landsins, hvort sem setið er í stúkunni eða unnið við umfjöllun á hliðarlínunni.

2. Sláturhúsið (Keflavík)

Heimavöllur Keflvíkinga tekur annað sætið. Salurinn er þekktur fyrir mikil læti, þétta umgjörð og mikla hefð, enda ófáir stórleikirnir sem hafa farið þar fram í gegnum tíðina.

3. Meistaravellir (Vesturbær)

Heimavöllur KR í Frostaskjóli skipar þriðja sætið. Gamli salurinn skilar alltaf sinni einstöku upplifun þegar stórleikir fara fram, stúkan er þétt upp við völlinn og vinnuaðstaðan góð.

4. Fjárhúsið (Stykkishólmur)

Íþróttahúsið í Hólminum, heimavöllur Snæfells, er í fjórða sæti. Húsið hefur lengi verið rómað fyrir góða umgjörð og mikinn hita í áhorfendum þar sem gestalið og fjölmiðlar fá alltaf alvöru móttökur.

5. Frystikistan (Hveragerði)

Heimavöllur Hamars rekur lestina á topp fimm listanum. Áhorfendur sitja ofaná vellinum, nándin við leikinn er algjör og hávaðinn eftir því þegar vel lætur í Hveragerði.

Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum hlaðvarpsveitum.

Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.

Fréttir
- Auglýsing -