Fyrsta umferðin í Bónusdeild karla er afstaðin og eins og jafnan áður fer fólk á fullt flug með alls konar kenningar og ályktanir eftir fyrstu 40 mínútur hvers liðs.
Í nýjasta þætti Aukasendingarinnar fóru þeir Davíð Eldur, Mummi Jones og Óli Dós yfir níu pælingar sem vöknuðu eftir fyrstu leikina.

9 ofviðbrögð eftir fyrstu umferð í Bónusdeild karla
- Rúnar Ingi er töframaður en Njarðvík verður í fallbaráttu og í alvöru veseni
- Nýju reglurnar eru vafasamar og dómarar munu hætta þessu eftir 4 umferðir
- Náungakærleikurinn og samheldnin í Grindavík er búin
- Álftanes er að ofpeppast (það er í lagi)
- Bónusdeildin er langt frá því að verða atvinnumannadeild
- Aldrei vanmeta Finn Frey
- Emil Barja á við alltof stórt verkefni og þetta Stjörnulið lítur rosalega illa út
- Ármann eru að ,,over correcta” frá því í fyrra
- Sindri verða í úrslitakeppni (playoffs) ef þeir fá einn góðan Bosman-leikmann
Þáttinn má hlusta á í spilaranum hér að ofan ásamt því að vera aðgengilegur undir nafninu Karfan á öllum helstu hlaðvarpsveitum.
Samstarfsaðilar Körfunnar eru Bónus, Wodbúð körfubolti, Tactica, Lengjan, Kristall og Lykill.




